Slysavarnir
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur alla tíð verið leiðandi í slysavörnum og öryggismálum. Það er ekki síst að þakka fórnfúsu starfi fjölmargra sjálfboðaliða í slysavarnadeildum og björgunarsveitum félagsins, en einnig hefur aðkoma fjölmargra samstarfsaðila gert félaginu kleift að vera í forystu í þessum mikilvæga málaflokki. Félagið hefur síðustu áratugi lagt sérstaka áherslu á forvarnir gegn drukknun, öryggi barna, eldri borgara, ferðafólks og öryggi okkar í umferðinni, ásamt því að hvetja til markvissari skráningu og rannsókna á slysum. Að auki má nefna hundruði sjálfboðaliða félagsins um land allt sem sinna slysavörnum í sínu nærsamfélagi.