KÓPAVOGUR, ICELAND

12-14 SEPTEMBER 2028

KÓPAVOGUR, ICELAND

UM ICEFISH

HVENÆR?
Þriðjudagur 12. september frá kl. 10:00-18:00
Miðvikudagur 13. september frá kl. 10:00-18:00
Fimmtudagur 14. september frá kl. 10:00-17:00

HVAR?
Smáranum/Fífunni, Dalsmára 5, 201 Kópavogi

HVERJIR? Fagfólk og sérfræðingar í atvinnuveiðum, fiskeldi, sjávarréttaframleiðslu og vinnslu sjávarafurða.

57
ÞÁTTTÖKUÞJÓÐIR
8 500
RÍFLEGA 10 ÞÚSUND GESTIR
185
SÝNENDUR
9
RÁÐSTEFNULIÐIR
20
SAMSTARFS-SAMTÖK

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnan (IceFish) er sýning með langa og farsæla sögu og nýtur mikillar virðingar. Hún var fyrst haldin 1984 og hefur vaxið og dafnað allar götur síðan. Sýningin er traustur og viðurkenndur vettvangur til að skapa ný viðskiptatengsl og kynnast því sem hæst ber í sjávarútvegi, veiðum og vinnslu, framförum og framleiðslu virðisaukandi hliðarafurða, ásamt hraðri þróun í fiskeldi.


IceFish verður haldin í sextánda skipti í Kópavogi dagana 12.-14. september 2028. IceFish 2028 tekur mið af þeirri miklu velgengni sem IceFish 2026 naut og býður upp á kraftmikla blöndu af nýjungum, fræðandi og áhugaverðum ráðstefnum, fyrirtækja-stefnumótum, nýsköpun og skemmtilegum kynningum á nýjum og spennandi vörum. Að ógleymdum hinum virtu Íslensku sjávarútvegsverðlaunum, sem heiðra framúrskarandi fyrirtæki og einstaklinga á öllum sviðum sjávarútvegs.