FERÐIR OG GISTING

Ísland hefur um langt skeið verið í fararbroddi þjóða heims á sviði fiskveiða og nú fiskeldis. Hafið er miðlægt í menningu þjóðarinnar, efnahagskerfi og sjálfsmynd. Í krafti þess að vera umlukið mörgum gjöfulustu fiskimiðum Norður-Atlantshafsins hefur landið byggt upp orðstír á alþjóðavísu fyrir ábyrga fiskveiðistjórnun, nýsköpun í vinnslu sjávarafurða og þróun sjálfbærs fiskeldis. Íslendingar flytja nú út hágæða sjávarafurðir til markaða vítt og breitt um heiminn og halda áfram að vera leiðandi í rannsóknum, tækniþróun og starfsháttum sem tryggja að auðlindir sjávar haldist heilbrigðar til langframa.

Reykjavík er nyrsta höfuðborg Evrópu en þó styttra á milli hennar og New York heldur en á milli New York og Los Angeles á landakortinu. Flug frá helstu borgum Evrópu til Íslands tekur yfirleitt aðeins 2-5 klukkustundir.

Reykjavík er gestrisin borg með alþjóðlegum blæ. Á höfuðborgarsvæðinu búa um 260 þúsund manns í sjö sveitafélögum. Þar má finna hágæða hótel og veitingastaði, iðandi næturlíf, metnaðarfull leikhús og áhugaverða staði til að heimsækja og skoða. Skammt frá borginni er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna, Bláa lónið.

HVERNIG BEST ER AÐ KOMAST Á ICEFISH

HeimilisfangSmárinn/Fífan, Dalsmára 5, 201 Kópavogi Nóg er af ókeypis bílastæðum á IceFish, þar á meðal bílastæði fyrir fatlaða.
Með flugiÁ Keflavíkurflugvelli er flug til og frá helstu borgum Evrópu og Norður-Ameríku. Flugtími frá flestum áfangastöðum í Evrópu er yfirleitt ekki lengri en 3-4 klst.
Hertz bílaleigaHertz Ísland býður upp á sérstakt leiguverð fyrir sýnendur/gesti á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni 2026. Hægt er að sækja bíla bæði á Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli. Bókaðu með hnappinum hér fyrir neðan með kóðanum ICEFISH:BÓKA HJÁ HERTZ BÍLALEIGU

GISTIMÖGULEIKAR

Reykjavík Hotel, Iceland Hotel Collection by BerjayaBerjaya Reykjavík Marina Hotel er starfrækt í fallega uppgerðri byggingu við slippinn sögufræga í Reykjavík, í hjarta líflegs hafnarsvæðisins og skammt frá miðbænum. Litrík hönnun hótelsins sameinar bæði ævaforna arfleifð Íslendinga í sjávarútvegi og öll þægindi nútímans, allt frá gæðarúmfötum til háhraða Wi-FI. Og útsýnið yfir höfnina er einstakt! Hótelið er frábærlega staðsett við gömlu bryggjuna, í göngufæri frá öllum „hipp og kúl” stöðunum úti á Granda, iðandi miðborginni og helstu kennileitum Reykjavíkur, svo sem tónlistarhúsinu Hörpu. Staðsetning sem gerir hótelið að úrvals valkosti fyrir þá sem vilja upplifa skemmtun og menningu í borginni. Bókaðu dvöl á hótelinu á afsláttarverði á tímabilinu 20. til 26. september, eftir því sem framboð leyfir.BÓKAÐU HÉR