Fiskistofa er stjórnsýslu‑ og eftirlitsstofnun sem heyrir undir atvinnuvegaráðuneytið og annast framkvæmd laga um fiskveiðistjórnun og laga um lax‑ og silungsveiði.
Stofnunin sér um úrvinnslu mála og útgáfu ákvarðana, auk þess að hafa eftirlit með fiskveiðum og vinnslu sjávarafla. Fiskistofa leggur áherslu á framsækna og skilvirka stjórnsýslu og er leiðandi í fiskveiðistjórnun á heimsvísu.