Ísland
Meðsýnendur af Samhentir
Formar sérhæfir sig í framleiðslu á EPS-flutningskössum fyrir sjávarútveg. Kassarnir eru hannaðir fyrir ferskar sjávarafurðir og tryggja góða einangrun, vernd og gæði í flutningi og meðhöndlun. Formar framleiðir fjölbreytt úrval fiskikassa í mismunandi stærðum ásamt tengdum fylgihlutum fyrir pökkun ferskra fiskafurða.
Framleiðslan fer fram á Íslandi og lögð er áhersla á ábyrga nýtingu hráefna. Gallaðar vörur og hreint EPS-efni eru endurunnin og nýtt áfram, meðal annars í framleiðslu á einangrun, sem styður við betri nýtingu auðlinda og umhverfisvænni rekstur.
Formarer dótturfyrirtæki Samhentra, sem er leiðandi í heildarlausnum fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað á Íslandi. Samhentir bjóða fjölbreytt úrval umbúða, merkingarlausna, pökkunarvéla, rekstrarvara og sérhæfðrar þjónustu sem styður við hagkvæmni, gæði, rekjanleika og örugga meðhöndlun afurða. Með áratuga reynslu, öflugu vöruúrvali og öflugri ráðgjöf eru Samhentir traustur samstarfsaðili fyrirtækja í sjávarútvegi á Íslandi og víðar.