Samhentir bjóða heildarlausnir fyrir sjávarútveg og matvælaframleiðslu, með fjölbreytt úrval umbúða, merkingarlausna, pökkunarvéla, rekstrarvara og sérhæfðrar þjónustu. Fyrirtækið hefur áratuga reynslu af því að þjónusta íslenskan sjávarútveg og vinnur náið með viðskiptavinum að lausnum sem styðja við hagkvæmni, gæði, rekjanleika og örugga meðhöndlun afurða. Með öflugu vöruúrvali, ráðgjöf og þjónustu á einum stað eru Samhentir traustur samstarfsaðili fyrirtækja í sjávarútvegi á Íslandi og víðar.
Samhentir eiga og reka einnig dótturfyrirtækin Vörumerking og Formar ehf.
Vörumerking býður sérhæfðar merkingar- og umbúðalausnir fyrir sjávarútveg, þar sem gæði, rekjanleiki og sterk vöruframsetning fara saman. Fyrirtækið framleiðir endingargóða og matvælaörugga merkimiða ásamt prentuðum umbúðum sem henta kröfum fiskvinnslna og útflytjenda.
Formar sérhæfir sig í framleiðslu á EPS-flutningskössum(frauðplastfiskikassa) fyrir sjávarútveg. Kassarnir eru hannaðir fyrir ferskar sjávarafurðir og tryggja góða einangrun, vernd og gæði í flutningi og meðhöndlun. Formar framleiðir fjölbreytt úrval fiskikassa í mismunandi stærðum ásamt tengdum fylgihlutum fyrir pökkun ferskra fiskafurða.
Formar sérhæfir sig í framleiðslu á EPS-flutningskössum fyrir sjávarútveg. Kassarnir eru hannaðir fyrir ferskar sjávarafurðir og tryggja góða einangrun, vernd og gæði í flutningi og meðhöndlun. Formar framleiðir fjölbreytt úrval fiskikassa í mismunandi stærðum ásamt tengdum fylgihlutum fyrir pökkun ferskra fiskafurða.
Framleiðslan fer fram á Íslandi og lögð er áhersla á ábyrga nýtingu hráefna. Gallaðar vörur og hreint EPS-efni eru endurunnin og nýtt áfram, meðal annars í framleiðslu á einangrun, sem styður við betri nýtingu auðlinda og umhverfisvænni rekstur.
Formarer dótturfyrirtæki Samhentra, sem er leiðandi í heildarlausnum fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað á Íslandi. Samhentir bjóða fjölbreytt úrval umbúða, merkingarlausna, pökkunarvéla, rekstrarvara og sérhæfðrar þjónustu sem styður við hagkvæmni, gæði, rekjanleika og örugga meðhöndlun afurða. Með áratuga reynslu, öflugu vöruúrvali og öflugri ráðgjöf eru Samhentir traustur samstarfsaðili fyrirtækja í sjávarútvegi á Íslandi og víðar.
Plastco ehf var stofnað árið 1988 og frá upphafi hefur markmið fyrirtækisins verið að bjóða íslenskum fyrirtækjum ráðgjöf og þjónusta hvað varðar vélar og umbúðir. Starfsemi Plastco byggir á sérfræðiþjónustu við fagfólk í íslenskum iðnaði, sú þjónusta ber vitni um þá tæknikunnáttu og þá reynslu sem fyrirtækið býr yfir. Hvort sem litið er til þekkingar á umbúðum, vélum til pökkunar eða uppsetningar og almennrar þjónustu við þær lausnir sem við bjóðum.
Plastco þjónustar viðskiptavini við uppsetningu tækja, hugbúnaðar, þjálfun viðskiptavina, varahlutaþjónustu og fleira.
Vörumerking býður sérhæfðar merkingar- og umbúðalausnir fyrir sjávarútveg, þar sem gæði, rekjanleiki og sterk vöruframsetning fara saman. Fyrirtækið framleiðir endingargóða og matvælaörugga merkimiða ásamt prentuðum umbúðum sem henta kröfum fiskvinnslna og útflytjenda. Lausnir Vörumerkingar hjálpa fyrirtækjum að tryggja skýrar upplýsingar, faglegt útlit og áreiðanlega auðkenningu vara alla leið frá vinnslu til markaðar.
Vörumerking er dótturfyrirtæki Samhentra, sem er leiðandi í heildarlausnum fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað á Íslandi. Samhentir bjóða fjölbreytt úrval umbúða, merkingarlausna, pökkunarvéla, rekstrarvara og sérhæfðrar þjónustu sem styður við hagkvæmni, gæði, rekjanleika og örugga meðhöndlun afurða. Með áratuga reynslu, öflugu vöruúrvali og öflugri ráðgjöf eru Samhentir traustur samstarfsaðili fyrirtækja í sjávarútvegi á Íslandi og víðar.
Samhentir kassagerd ehf, Suðurhraun 4A, 210 Garðabær, Iceland
Íslenskir sýnendur